Make your own free website on Tripod.com
Home | Jarðaberið* | Cassie snúllz* | Me Homies* | Gestabók*

~Everytime I try to fly, I fall without my wings~

Dagbókin
 
 
7.Desember 2004
Já gott fólk, þar hef ég sko fréttir að færa..En þannig er mál með vexti að gærdagurinn var Æ EÐ I = ÆÐI !!
Dagurinn byrjaði með því að ég fór til Bermingham með skólanum á árlegu tískusíninguna þar. Við höfðum klukkutíma til að versla, áður en að við fórum á tískusýninguna sjálfa, og síðan höfðum við 3 tíma eftir hana. En já..tískusýningin...OMG í stuttu orði var hún geðveik!! Og sjitturinn, strákamódelin....hot*hot*hot*hot*hot og aftur *HOT*  ! Úff stelpur, þeir voru brjálaðir kroppar  (L)
En jájá, ég keypti nú ekkert mikið ótrúlegt en satt sko...verslaði mér "Von Dutch" bol, belti og tösku :)
Síðan eftir geðveikann dag og sjón á fallegustu karlmönnum ever ( og náttlega fötunum :P) , þá lögðum við af stað heim með rútunni aftur rúmlega 3....Um leið og ég kom heim, var tími til kominn að fara í VINNUNA :) Fyrsti vinnudagurinn..Úff ég var stressuð, en viti menn...ég lifði kveldið af án þess að brjóta glas, sulla niður or anything :) Og það sem best er..ég fékk vinnuna :D:D
Jæja snúllís,ætla að fara að læra :/ Boj Boj
- - - - -
 
5.Desember 2004
Vá ég er bara orrin stressuð fyrir fyrsta vinnudeginum, sem er btw á MORGUN *roðn* Veit að ég á ettir að klúðra einhverju ..brjóta glas or some *atturroðn*
En annars þá vorum við í laufarbrauðsgerð áðan með Heiðari&Eik og Daða&Stönu , allt gekk vel og síðan vorum við að enda við að éta afgangana ný steikta *namminamm*
En já það styttist í jólin, bara 19 dagar þangað til :) Og bara 10 skóladagar :D Alla þessa viku verð ég að undirbúa hálfgerða ræðu um "Romeo and Juliet" í enskutímum í skólanum, og síðan næstu vikuna ettir á þurfum við að lesa ræðuna *sjiiitttt*
En jæja, ætla að halda áfram að vinna í síðunni, boj boj :)
 
- - - - -
 
4.Desember 2004
Já gleðilega helgi :)
Hvað haldiði að ég hafi verið að læra áðan af honum Heilvitanum mínum henni Sjöfn!?! ...Þegar tveir hálvitar koma saman, myndast þeir í Heilvita! *hóst* skiljanlegt? *hóst* Meiri súddarnir Steina og Sjöfn.....Þær ættu að vita að Sæný og Guný halda völdum *hotsmile*
En já, minns er bara nánast kominn með vinnu skal ég segja ykkur :) Sótti um vinnu á pöbb hérna rétt hjá sem er veitingastaður. Ég mæti í prufuvinnu á mánudaginn og svo aftur á fimmtudaginn, ef mér líkar þetta vel og þeim við mig þá fæ ég líklegast vinnuna :D
Hvert haldiði síðan að ég sé að fara á mánudaginn með skólanum ?!?.....ég er að fara til Bermingham á árlegu TÍSKUSÍNINGUNA sem er haldin þar. Öll heitustu merki bretlands koma fram og ég veit ekki hvað og hvað. Síðan verður hægt að kaupa föt á staðnum og alles :D Hlakka ekkert smá uber mikið til sko :D:D
Já síðan fer maður bara í laufabrauðsgerðina á morgun *cool* Júlen eru víst að setjast í garð svo maður verður nú að gera þetta nógu snemma :)
Boj Boj tíkur :)
 
- - - - -
 
1. Desember 2004
Vá, er ekki bara kominn desember :) Styttist óðum í páskana!
Annars þá var minn bara að koma heim úr skúlen, var voða stuð eins og alltaf. Voða tenor í Hisory-bekknum mínum sem var syngjandi jólalög allann tímann, kom manni í rétta stuðið náttúrlega.
Síðan skemmdi það ekki þegar mútta náði í mig og færði mér þær fréttir að ég væri líklega komin með vinnu :D Já konur og karlar, ég er ábyggilega að fara að vinna á Pub hérna rétt hjá. Á að mæta í viðtal á morgun og er alveg óða úber spennt!
Ég heyrði í honum pabbz mínum í gær, en hann var þá staddur á Ísafyrði sagði hann. "ÍSAFYRÐI" ,argað ég .."hvað ertu að gera þar?" Haldiði að pabbi hafi ekki svarað að hann væri í leit að húsi handa okkur *hahahahaha* *endalaus hlátur* !! Ég færi í verkfall ef ég þyrfti að flytja á þann partístað sko!
En jæja jarðaberin mín, ætla að finna útúr því hvernig ég set gestabók á þessa síðu. Until then, bojboj :*
 
- - - -
 
30.Nóvember 2004
Það var fínt í skólanum í dag, frekar tómlegt allt saman þar sem elstu bekkingarnir eru í samrændu núna út þessa viku. Maður þarf að hafa alveg xtra hljótt svo maður  "trufli" ekk :lol:
Annars þá eru bara júlen ettir 24 daga, og ég að drepast úr spenningi. Jólin eru sko bestust, að liggja uppi í rúmi á milli jóla og nýárs að horfa á góða jólamynd með makkíntos og jólaöl  *andvarp*....fátt toppar það :smile:  Pabbi er búinn að kjafta..ég hef það svona á tilfiningunni að ég fái sjónvarp með dvd frá múttz og pabb, sem er alls ekki slæmt :)
Boj boj my lovers :)
- - - -

 *ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN*